Allar fréttir

Vinningshafar í Litlum Fótboltasnillingum

11.2.2010

 

Nú liggur fyrir hvaða tveir fótboltasnillingar fara með fylgdarmanni á leik Manchester United og AC Milan í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Englandi 10. mars næstkomandi.

Samtals voru 10 þátttakendur sem komust í milliriðil sem samanstóð af viðtölum og í kjölfarið voru vinningshafarnir valdir. Þeir eru:

Rakel Marín Konráðsdóttir. Hún er 7 ára og leikur með 7. flokki í Stjörnunni. Rakel er í Flataskóla og heldur með Manchester United. Frá því að hún skráði sig í leikinn sá hún sig alltaf leiða Runy inn á völlinn.

Viktor Blær Hafþórsson. Hann er 7 ára og leikur með 7. flokki í ÍR. Hann heldur með Arsenal en finnst samt frábært að vera að fara á Manchester United leik og fá að leiða leikmann inn á völlinn.

Að auki voru dregnir út aukavinningshafar sem unnu að þessu sinni Adidas fótboltaskó og FÍFA tölvuleik. Vinningshafarnir eru Bjartur Fannar Vilhjálmsson og Hekla Maren Jónasdóttir.

Búið er að hafa samband við vinningshafa.

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju með vinninginn og þökkum öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í leiknum.

Ferð þeirra verður 9. - 11. mars og mun Stöð 2 Sport fylgjast vel með vinninsthöfunu, bæði fyrir og eftir leik. Hægt er að fylgjast með fréttum af ferðalöngunum hér á síðunni þegar nær dregur brottför.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði