Allar fréttir

MasterCard SecureCode

29.12.2009

MasterCard mun á fyrsta árfjórðungi 2010 innleiða MasterCard SecureCode - aukið öryggi til netverslunar fyrir íslenska MasterCard korthafa.

SecureCode

MasterCard SecureCode
MasterCard SecureCode gerir MasterCard korthöfum kleift að eiga öruggari viðskipti við þúsundir verslana á vefnum.

Af hverju MasterCard SecureCode?
Þegar MasterCard korthafar skrá sitt SecureCode lykilorð þá auka þeir öryggi sitt við verslun á netinu til muna. Þetta verndar korthafa gegn misnotkun á kortinu þegar verslað er hjá seljendum sem styðja MasterCard SecureCode.

Auðvelt er fyrir MasterCard korthafa að nýta sér þjónustuna - ekki er þörf á að endurnýja kortið, ekki þarf að hala niður hugbúnaði á vefnum og engin aukakostnaður fylgir notkuninni? aðeins aukið öryggi!

Notkun MasterCard SecureCode
Þegar korthafi verslar með MasterCard greiðslukortinu sínu í netverslun sem styður við SecureCode þjónustuna:

  1. Korthafi samþykkir pöntun á vöru og/eða þjónustu sem versla á líkt og áður.
  2. SecureCode gluggi opnast sjálfvirkt og korthafi er beðinn um að stimpla inn SecureCode lykilorðið sitt. Ef korthafi hefur ekki SecureCode lykilorð þá hefst skráning á þessum tímapunkti.
  3. Innan fárra sekúndna þá er réttur notandi staðfestur og kaupin ganga í gegn. Þessi samskipti eru aðeins á milli korthafans og útgefanda kortsins og aðeins aðgengileg þeim.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði