Síðasti vinningshafinn í Sumarleiknum hefur verið dreginn út
Nú hefur síðasti vinningshafi Sumarleiks Kreditkorts verið dreginn út og var það Gunnhildur Gunnarsdóttir sem býr í Garðabæ.
Gunnhildur var sú heppna sem dregin var út í sumarleiknum og vann síðasta gjafabréfið frá ferðaskrifstofunni VITA að upphæð 800.000 kr.
Óskum við Gunnhildi og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með vinninginn þeirra.
Gunnhildur var eðlilega mjög ánægð að vinna gjafabréfið frá VITA en þó að hún vissi af leiknum á kortinu sínu þá bjóst hún alls ekki við að vinna svo þetta kom mjög á óvart en henni fannst þetta skemmtilega óvænt byrjun á sumarfríinu sínu að vinna í leiknum.
Þá er sumarleiknum okkar lokið og óskum við vinningshöfum sumarleiksins
en og aftur innilega til hamingju.

