Allar fréttir

Þú ert öruggari með MasterCard
Þú ert öruggari með MasterCard

Örgjörvar á MasterCard kort

Fréttatilkynning

1.3.2006

Á næstu mánuðum verða öll MasterCard kort á Íslandi endurnýjuð og gefin út með örgjörva. Þetta er fyrsta skrefið í átt að því að auka öryggi í greiðslukortaviðskiptum.

Á næstu mánuðum verða öll MasterCard kort á Íslandi endurnýjuð og gefin út með örgjörva. Í kjölfarið verða Maestro debetkort endurnýjuð á sama hátt. Örgjörvinn sem Kreditkort hf. valdi að setja á MasterCard kort er sá öruggasti sem völ er á í dag og hefur reynst ógjörningur að falsa hann. Þá býður hann upp á marga aðra möguleika, t.d. vildarkerfi og rafræn skírteini.

Mikilvægi PIN númera

Nýtt fyrirkomulag þýðir að PIN-númer koma smám saman í stað undirskriftar. Í sumum löndum Evrópu er þessi breyting þegar orðin og er fólk hvatt til að hafa PIN-númer sín á takteinum en ganga um leið úr skugga um að þau séu ekki aðgengileg öðrum. PIN-númer má t.d. aldrei geyma með korti. Sé korti stolið og það notað í hraðbanka með réttu PIN-númeri ber korthafi ábyrgð á úttektum þar til hann tilkynnir MasterCard stuldinn.

Örgjörvavæðing greiðslukorta er stutt á veg komin

Örfá lönd hafa stigið skrefið til fulls í þessari tækni, þar á meðal Bretland. Þar eru innlend kort komin með örgjörva og notkun staðfest með PIN númeri. Öll erlend kort eru þó tekin óháð því hvort þau eru með örgjörva eða ekki. Önnur lönd Evrópu vinna að innleiðingu örgjörva en engin vandræði hafa verið fylgjandi notkun segulrandar. Íslenskir korthafar ættu því ekki að lenda í neinum vandræðum erlendis.

Greiðslukort með segulrönd verða tekin gild

Enn eru fjölmörg lönd sem ekki hafa hafið undirbúning örgjörvavæðingar eða eru mjög skammt á veg komin. Gera má ráð fyrir að örgjörvavæðing heimsins alls muni taka mörg ár. Meðan svo er munu seljendur taka við greiðslukortum án örgjörva.

Öryggi framtíðarinnar

Það er langtímaverkefni að auka öryggi greiðslukorta með innleiðingu örgjörva. Það eitt að hafa örgjörva á greiðslukorti gerir það ekki öruggara. Svo lengi sem segulrönd kortsins er notuð við viðskiptin breytir örgjörvi engu. Öryggið eykst fyrst þegar kort með örgjörva er notað í þar til gerðum lesara. Afgreiðslukerfi og posar hér á landi eru ekki farin að lesa örgjörva, en undirbúningur stendur yfir og standa vonir til þess að honum ljúki með vorinu.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Vefsvæði