Points.is

Notaðu Points punktana þína í eitthvað skemmtilegt

Points.is er fríðindakerfi sem býður upp á fjölbreytt og skemmtileg fríðindi og gerir korthöfum neðangreindra korta kleift að nota fríðindin sín strax. Points.is er vefsíða þar sem hægt er að innleysa þá punkta sem korthafi safnar og getur því nýtt punktana til að kaupa margskonar vörur og þjónustu. Punktastaða korthafa er uppfærð mánaðarlega inn á Points.is.

Með uppsöfnun sinni á kortið sitt safnar korthafi punktum af allri veltu kortsins. Kreditkort er eini kortaútgefandinn á Íslandi sem veitir korthöfum fríðindi af allri veltu, hvort sem um er að ræða veltu innanlands, erlendis eða úttekt í hraðbanka.

Hægt er safna points-punktum með eftirfarandi MasterCard kortum:

  • ATLAS og ATLAS Plús korthafar safna 0,55% af allri veltu
  • Gull og Gull Plús korthafar safna 0,6% af allri veltu
  • Platinum korthafar safna 0,65% af allri veltu
  • Viðskiptakort Gull og Gull Plús safna 0,6% af allri veltu
  • Viðskiptakort Platinum safnar 0,65% af allri veltu
  • Innkaupakort – silfur með ferðaávísun safna 0,55% af allri veltu

Kortið verður að vera útgefið af Kreditkorti hf. til að nýta fríðindi hjá Points.is 

Um Points.is

Vefsíðan er í samstarfi við verslanir í ýmsum vörum og þjónustuflokkum og er kaupferlið mjög einfalt og þægilegt. Eftir kaup á vefsíðunni nálgast korthafinn vöruna í verslunina með útprentuðu „gjafabréfi“ með afsláttarkóda, skrifar kódann á blað eða fær sent SMS með kvittun í farsíma.

Eftir innskráningu á www.points.is birtast strax þeir points-punktar sem korthafinn á nú þegar og einnig kemur fram á síðunni hvaða vörur eru í boði fyrir þá punktainneign sem korthafinn á. Nánar á síðunni er hægt að skoða allar aðrar vörur sem í boði eru og hvert points-punkta verð þeirra er.

Einnig er hægt að framselja punkta til annarra MasterCard korthafa, útgefið af Kreditkorti á www.points.is.

Kynntu þér points-punktana þína nánar og byrjaðu að nota fríðindi þín strax í dag.

Sjá nánar á www.points.is

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjónarkerfi