Silfurkort
Ódýrt og einfalt en þó öflugt kort fyrir þá sem eru ekki að leita að fríðindum en eru samt að sækjast eftir almennum grunn ferðatryggingum.
- SMS með upplýsingum um stöðu og notkun kortsins
- Grunnferðatryggingar og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis
Hraðbankar
Mastercard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka sem kortin virka í erlendis. Úttektarheimildirnar eru:
| Innlend: 25.000,- á viku á meðan heimild leyfir | |||
| Erlend: 50.000,- á dag á meðan heimild leyfir | |||
| Plúskort: Sömu heimildir og hér að ofan |
Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.
Aukið öryggi
Þú getur fengið SMS ef kortið er notað án segulrandar. Þetta t.d. á við þegar verslað er með kortinu á internetinu eða í gegnum síma. Þetta er frábær leið til þess að auka við öryggi kortsins og veitum við þessa þjónustu án endurgjalds.
Plúskort
Það er einnig í boði að fá Silfurkortið sem plúskort. Plúskort er fyrirfram greitt kreditkort en þannig getur þú notað kortið eins og debetkort, þó með því að safna fríðindum og að greiða engin færslugjöld.
Tryggingar
Með Silfurkorti fylgja grunnferðatryggingar og neyðarþjónuta. Við mælum með því að korthafar kynni sér mismun á milli kortategunda hér: Upplýsingar um ferðatryggingar.

