Greiðsluleiðir

.

Leiðbeiningar fyrir þá sem vilja leggja inn á MasterCard Plús í heimabanka og þá sem vilja greiða reikninga án þess að hafa gíróseðilinn við höndina

Athugið að greiðslur inn á MasterCard Plús (fyrirframgreidd kort) uppfærast ekki strax, en skila sér inn á kortið á kortérs fresti frá kl. 8.00 - 21.00 alla virka daga. Nánar neðst á síðunni.

Leiðbeiningar

  • Veldu þá aðgerð sem felur í sér greiðslu reikninga í heimabankanum þínum
  • Veldu A-gíróseðil (gíróseðil hjá Sparisjóðnum)
  • Sláðu 12 síðustu tölurnar í kortanúmerinu inn í reit sem er merktur tilvísunarnúmer
  • Sláðu fyrstu 7 tölurnar í kennitölunni þinni inn í reit merktan seðilnúmer
  • Færslulykill (Fl) á alltaf að vera 31
  • Veldu reikning:

Reikningar

Fyrst velur þú reikning eftir því í hvaða banka er greitt:

Banki Stofnun Hb Reikn.
Landsbankinn 0101 26 006606

Arion banki

0301 26 000321
Íslandsbanki 0515 26 000035
Sparisjóðir 1175 26 660107

 

Kennitala Kreditkorts er 660107-1180

 

Í flestum tilfellum kemur upp gluggi þar sem óskað er staðfestingar á greiðslunni. Þar á að koma fram að viðtakandi greiðslu sé útgefandi kortsins (Kreditkort hf.).

Reglulegar greiðslur

Við minnum á að í flestum heimabönkum er hægt að vista þessar upplýsingar sem fastar eða reglulegar greiðslur til að sleppa við að slá þær inn hverju sinni.

SMS fyrir MasterCard Plús

Nú geta korthafar fengið tilkynningu um innlagnir með SMS. Í skeytinu kemur fram upphæðin sem lögð var inn og staðan á kortinu eftir innlögn.

Skráning í SMS sérþjónustu

Athugið!

Athugið að greiðslur inn á MasterCard Plús uppfærast ekki strax, en skila sér inn á kortið á korters fresti frá kl. 8.00 - 21.00 alla virka daga.

Færslur sem framkvæmdar eru eftir kl. 21:00 að íslenskum tíma eru afgreiddar næsta virka bankadag. Komi greiðsludagur upp um helgi eða á frídegi greiðist fjárhæðin næsta virka bankadag.

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Vefur