Heilræði

Glatað eða stolið kort

Hvernig bregðast skal við ef kort glatast eða því er stolið

Ef MasterCard kreditkort glatast eða er stolið ber korthafa að tilkynna það tafarlaust til MasterCard - Kreditkort hf. í síma 550 1500 eða í neyðarsíma 533 1400. Í MasterCard þjónustuveri er neyðarvakt allan sólahringinn.

Korti lokað tímabundið

Ef korthafi óttast að hann sé búinn að týna korti sínu er hægt er að óska eftir að láta loka kortinu tímabundið en þó aldrei lengur en í einn sólarhring. Korthafi fær þá staðfestingarnúmer sem hann þarf að gefa upp ef hann vill láta opna aftur fyrir notkun á kortinu. Athugið að ef kortið finnst ekki innan sólahrings lokast það sjálfkrafa.

Glatað eða stolið kort má ekki undir neinum kringumstæðum nota. Finnist kort, ber finnanda að senda það sundurklippt til MasterCard - Kreditkorts hf., Ármúla 28-30 eða fara með það í næsta banka eða sparisjóð.

Ábyrgð korthafa

Korthafi skal, þar til tilkynning hans berst útgefanda, bera það tjón sem hann hefur orðið fyrir, vegna taps, þjófnaðar eða fölsunar á kortinu, en þó ekki meira en sem nemur 150 EUR í hverju tjónstilviki, nema ef um stórfellt gáleysi eða svik af hans hálfu hafi verið að ræða.

Ef glatað eða stolið kort er notað í hraðbönkum, bensínsjálfssölum eða hverjum þeim stað þar sem beðið er um PIN númer og það notað ber korthafi alla ábyrgð á úttektinni. Því viljum við hjá MasterCard - Kreditkorti hf. ítreka það að PIN númer verði aldrei geymt nálægt kortinu.

Staðfesting

Eftir að korthafi hefur tilkynnt kort sitt glatað eða stolið ber honum að staðfesta tilkynninguna skriflega innan viku, hjá MasterCard - Kreditkorti hf. eða í næsta banka eða sparisjóð, á þar til gerðu eyðublaði áður en hann fær nýtt kort afhent.

Kostnaður vegna glataðs eða stolins korts er samkvæmt gjaldskrá MasterCard - Kreditkorts hf. Sjá gjaldskrá.

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasiðugerð