Gátlisti fyrir ferðalagið
Nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar ferðalög standa fyrir dyrum
Til að auka öryggið og minnka hættuna á því að verða fyrir skakkaföllum erlendis með MasterCard kreditkortið viljum við hvetja ykkur til að hafa eftirfarandi atriði í huga.
Þessi heilræði eru byggð á langri reynslu okkar af kortaviðskiptum. Það er full ástæða til að fara varlega með kortin svo skuggi falli ekki á ferðalagið vegna vandræða sem e.t.v. hefði mátt koma í veg fyrir með forsjálni.
Athugið gildistíma
Gangið úr skugga um að kortið sé ekki að renna út áður en lagt er upp í ferðina, og verðið ykkur úti um nýtt kort ef svo er.
Athugið úttektarheimild
Gætið þess að úttektarheimild sé í samræmi við það sem fyrirhugað er að setja á kortið. Hægt er að sækja um hækkun á heimild í MasterCard þjónustuveri í síma 550 1500 og að Ármúla 28-30, Reykjavík.
Geymið aldrei fleiri en eitt kort á sama stað
Sé korthafi með fleiri en eitt kort er vissara að geyma þau ekki á sama stað, því ef veski glatast eða því er stolið stendur viðkomandi uppi allslaus. Það er einnig góð regla að skrá númer kortsins hjá sér og geyma annars staðar. Það flýtir fyrir aðstoð að hafa númerið ef kort glatast.
Látið kortið aldrei úr augsýn
Þegar verið er að greiða með kortinu skal aldrei láta það úr augsýn, heldur alltaf fylgjast með þegar afgreiðslumaðurinn útbýr úttektarmiðann. Ef hringja þarf og biðja um úttektarleyfi skuluð þið fylgja afgreiðslumanninum ef hann þarf að fara frá til að hringja, biðja hann að koma með vélina að borði ykkar á veitingastað eða fylgja honum að kassanum. Þetta er góð venja sem ágætt er að temja sér.
Gangið úr skugga um upphæðina
Gangið úr skugga um að upphæðin á seðlinum sé rétt og skýr og sömuleiðis að ávallt sé fyllt út upphæð í niðurstöðudálkinn. Stundum er reiturinn fyrir heildarfjárhæð skilinn eftir auður á veitingahúsum, en þá er þjónustufólkið að óska eftir þjórfé (tips) og er þá þitt að skrifa í reitinn.
Gætið kortsins vel
Gætið kortsins sérstaklega vel á mörkuðum, skemmtistöðum og ekki síst næturklúbbum. Mörg dæmi eru þess að korthafar hafi lent í verulegum skakkaföllum á þessum stöðum og þurft að greiða háar fjárhæðir fyrir vikið.
Geymið ekki alla fjármuni á sama stað
Þetta á við um bæði kort og aðra fjármuni. Sértu með fleiri en eitt kort skaltu ekki geyma þau á sama stað, t.d. í veski, því þá stendurðu uppi allslaus ef veskið týnist eða því er stolið.
Leyninúmer (PIN)
Leggið leyninúmerið (PIN) vel á minnið en hafið það ekki meðferðis. Ótrúlega margir skrifa leyniorðið á miða og geyma með kortinu í veskinu. Steli einhver veskinu er því einfaldasta mál í heimi að taka pening út á kortið.
Hraðbankar
Varist að fara ein í hraðbanka að kvöldi eða nóttu til.
Tilkynnið umsvifalaust ef kort glatast eða því er stolið
Ef kort glatast eða er stolið þá ber korthafa að tilkynna það tafarlaust til MasterCard - Kreditkort hf. í síma 550 1500 eða neyðarsíma MasterCard 533 1400. Þar er vakt allan sólarhringinn.
Hafið eftirfarandi upplýsingar við höndina:
- númer MasterCard kortsins eða kennitölu korthafa
- númer vegabréfs
- símanúmer þar sem hægt er að ná í þig
- upplýsingar um dvalarstað svo við getum haft samband aftur
Ábyrgð korthafa
Ábyrgð korthafa á hverri úttekt er að hámarki 150 ECU, (c.a. 13.000) en hann ber ábyrgð á úttektum til þess tíma að hann tilkynnir MasterCard missi þess svo og ef um vítavert gáleysi hefur verið að ræða. Allar úttektir með leyninúmeri (PIN) úr hraðbönkum eru alfarið á ábyrgð korthafa.
Neyðarþjónustuspjald SOS í veskið og ferðatöskuna
MasterCard hefur látið útbúa sérstök spjöld með nauðsynlegum upplýsingum um neyðarþjónustu MasterCard og er korthöfum ráðlagt að geyma neyðarþjónustuspjaldið bæði í veskinu og ferðatöskunni. Hægt er að fá slík spjöld í þjónustudeild okkar, sem og í öllum bönkum og sparisjóðum.
Kynnið ykkur skilmála
Kynnið ykkur skilmála SOS neyðarþjónustunnar og tryggingarskilmála viðkomandi tryggingafélags vandlega áður en lagt er í ferðalag til að vita hvar þið standið ef óhapp ber að dyrum.
Haldið úttektarseðlum til haga
Geymið alla úttektarseðla og berið saman við reikninginn þegar hann berst til að ganga úr skugga um að allt sé eðlilegt.
Góða ferð!
Að sjálfsögðu vonum við að flestir komi ánægðir heim eftir farsæla og skemmtilega ferð, en við erum til þjónustu reiðubúin allan sólarhringinn, alla daga ársins, ef eitthvað bjátar á.
Gagnleg símanúmer
MasterCard neyðarsími
(+354) 533 1400
Tryggingamiðstöðin hf.
(+354) 515 2000
SOS International, Kaupmannahöfn
(+45) 7010 5055
Strategic Insurance Service Ltd. (bílaleigutryggingar)
(+44) 845 458 9677

