Heilræði
Nokkur góð ráð
Tilkynnið umsvifalaust ef kort glatast eða því er stolið
Ef kort glatast eða er stolið þá ber korthafa að tilkynna það tafarlaust til Kreditkort hf. í síma 550 1500 eða neyðarsíma MasterCard 533 1400. Þar er vakt allan sólarhringinn.
Hafið eftirfarandi upplýsingar við höndina:
- númer MasterCard kortsins eða kennitölu korthafa
- símanúmer þar sem hægt er að ná í þig
Athugið að sértu óviss um hvort kortið sé glatað eða eigi eftir að finnast er hægt að loka kortinu tímabundið. Þá getur þú hringt aftur innan eins sólarhrings og látið opna kortið.
Fylgist með úttektarheimild
Fylgist með því að úttektarheimild sé í samræmi við fyrirhugaða notkun. Við bendum t.d. á SMS sérþjónustu.
Hægt er að sækja um hækkun á heimild í MasterCard þjónustuveri í síma 550 1500 og að Ármúla 28, Reykjavík.
Farið varlega við notkun kreditkorta á Internetinu
- Gefið númerið eingöngu upp á vefverslunum sem þið treystið fyllilega.
- Með því að skrá þig í SMS sérþjónustu getur þú fengið SMS eða tölvupóst í hvert skipti sem kortið er notað á netinu.
- Við vekjum athygli á þeim möguleika að nota MasterCard Plús, fyrirframgreitt kreditkort, til að eiga viðskipti á vefnum, og leggja inn á það jafnóðum fyrir úttektum.
Leyninúmer (PIN)
Leggið leyninúmerið (PIN) vel á minnið en hafið það ekki meðferðis. Ótrúlega margir skrifa leyniorðið á miða og geyma með kortinu í veskinu.
Steli einhver óprúttinn aðili veskinu eða finni það er því einfaldasta mál í heimi að taka pening út á kortið í næsta hraðbanka. Allar úttektir með leyninúmeri (PIN) úr hraðbönkum eru alfarið á ábyrgð korthafa.
Ábyrgð korthafa
Ábyrgð korthafa á hverri úttekt er að hámarki 150 ECU, (c.a. 13.000 kr.) en hann ber ábyrgð á úttektum til þess tíma að hann tilkynnir MasterCard missi þess svo og ef um vítavert gáleysi hefur verið að ræða.
Allar úttektir með leyninúmeri (PIN) úr hraðbönkum eru alfarið á ábyrgð korthafa.
Kynnið ykkur skilmála
Kynnið ykkur viðskiptaskilmála MasterCard og skilmála ferðatrygginga vandlega til að þekkja réttindi ykkar.
Haldið úttektarseðlum til haga
Geymið alla úttektarseðla og berið saman við reikninginn þegar hann berst til að ganga úr skugga um að allt sé eðlilegt.

