Leyninúmer (PIN)
Um meðferð leyninúmera (PIN)
Ef þú gleymir leyninúmerinu þínu (PIN) geturðu hringt í Ráðgjafa- og þjónustuver Kreditkorts í síma 550 1500 eða sent okkur tölvupóst á kreditkort@kreditkort.is og við setjum það í póst um hæl.
Athugið að af öryggisástæðum er ekki hægt að fá leyninúmer (PIN) gefið upp símleiðis eða í tölvupósti.
Einnig er hægt að nálgast leyninúmerið (PIN) í afgreiðslu okkar að Ármúla 28 gegn framvísun persónuskilríkja, eða gegn framvísun umboðs - sjá reglur um umboð.
Munið að geyma leyninúmerið (PIN) aldrei á sama stað og kortið. Sé korti stolið og það notað í hraðbanka með réttu leyninúmeri ber korthafi alla ábyrgð á úttektum þar til hann tilkynnir MasterCard - Kreditkorti hf. um stuldinn.
Hvar er leyninúmerið notað?
Leyninúmerið er notað í hraðbönkum til að taka út reiðufé og einnig færist það í vöxt að leyninúmer séu notuð í stað undirskriftar í ýmsum sjálfsölum t.d. bensínsjálfsölum, svo og í verslunum erlendis.
MasterCard korthafar hafa nú aðgang að rúmlega milljón hraðbönkum víða um heim sem getur komið sér vel og því er vissara að fara ekki til útlanda nema hafa leyninúmerið meðferðis.
Leyninúmerið þarf að varðveita vel og tryggilega, þannig að enginn óviðkomandi komist að því.
Hvernig er leyninúmerið notað í verslunum?
Þegar leyninúmer eru notuð í verslunum fer það þannig fram að afgreiðslumaðurinn stimplar inn þá upphæð sem verslað er fyrir og birtist upphæðin á sérstökum skjá sem eingöngu korthafi á að geta séð á. Korthafi er þá beðinn um að samþykkja upphæðina með því að slá inn leyninúmer sitt. Þegar það hefur verið gert eru upplýsingarnar meðhöndlaðar á sama hátt og í hraðbönkum, þ.e. þær eru sendar til móðurtölvu MasterCard - Kreditkorts hf., leyninúmer sannreynt og sótt um heimild fyrir úttektinni.
Athugið að upplýsingarnar á að slá beint inn í afgreiðslutækin og það er með öllu óheimilt að gefa afgreiðslufólkinu upp leyninúmerið.
Athugið
- PIN-númer á aldrei að gefa upp við netviðskipti, eingöngu ef annaðhvort segulrönd eða örgjörvi er lesið á afgreiðslustað
- Allar úttektir á stolið kort sem staðfestar eru með PIN-númeri eru á ábyrgð korthafa, þar til hann tilkynnir útgefanda um stuldinn. Tilkynnið um glatað kort í neyðarsíma 533 1400.
- Korthafi á í öllum tilfellum sjálfur að slá inn PIN-númer, það er með öllu óheimilt að gefa afgreiðslufólki upp leyninúmerið.

