Öryggi í netviðskiptum

Réttur netverslunar gagnvart korthafa

Það sem netverslun/seljandi getur gert / má gera til að ganga úr skugga um að þú sért raunverulegur korthafi

Korthafi beðinn um öryggisnúmer

Þetta er þriggja stafa tala, CVC2, sem er skráð aftan á kreditkortið sjálft, í undirskriftarreitinn, og er staðfesting á því að viðkomandi hefur kortið undir höndum. 

Þessi tala er eingöngu gefin upp þegar viðskiptin eiga sér stað og seljanda er óheimilt að geyma þetta númer til nota síðar meir.

Korthafi beðinn um ljósrit af framhlið kortsins með faxi

Í örfáum tilfellum óskar seljandi eftir afriti af framhlið kortsins með faxi eða tölvupósti. 

Athugið að seljandi hefur enga heimild til að óska eftir afriti af bakhlið kortsins, enda kemur þar fram CVC2 númer, sem er staðfesting á því að viðkomandi hafi kortið undir höndum.

Útgefandi beðinn um staðfestingu á nafni og heimilisfangi

Seljandi getur haft samband við útgefanda kortsins og fengið staðfestingu á því að nafn og heimilisfang það sem gefið var upp við pöntun sé rétt. 

Seljandi hefur ekki rétt á að fá uppgefið nafn korthafa eða heimilisfang hjá útgefanda.

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasiðugerð