Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sögur af tölvuþrjótum sem beita klækjum til að komast yfir greiðslukortanúmer í þúsundatali og misnota þau fyrir milljónir króna ganga manna á milli og fæla almenning frá því að nýta sér þessa þægilegu leið til að versla. Margir eru þess vegna smeykir við að nota kort á netinu og forðast því annað hvort að eiga viðskipti við netverslanir eða gera það með hnút í maganum.
Að sjálfsögðu er ýmislegt að varast við notkun greiðslukorta, rétt eins og gildir við meðferð fjármuna almennt. Raunin er þó sú að aðeins eru sárafá dæmi þess á hverju ári að íslenskir korthafar verði fyrir fjárhagslegu tjóni.
Bæði er þetta ekki eins algengt og margur heldur og auk þess tekur útgefandi kortsins (bankinn) í nær öllum tilfellum á sig tjónið og korthafi verður aðeins fyrir óþægindum sé hann ekki sekur um vítavert gáleysi.
Upplýsingar um kort þitt er m.a. hægt að komast yfir á eftirfarandi hátt:
Eins og sjá má af þessari upptalningu er vefverslunin alls ekki eini veiki hlekkurinn og einn af fáum sem korthafinn hefur litla stjórn á.
Megnið af þessu er hægt með varúð að koma í veg fyrir. Með því að beita almennri skynsemi og fylgja eftirfarandi reglum má því nær útiloka óþægindi samfara því að versla með korti á netinu.
Leiðbeiningar um örugga notkun vefsins af Netöryggi.is
Leiðbeiningar Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja um bankaviðskipti á netinu