Öryggi í netviðskiptum

Ábyrg notkun kreditkorta á netinu

Heilræði sem geta nær útilokað óþægindi vegna viðskipta á vefnum

Skiptu aðeins við aðila sem þú treystir

Skiptu aðeins við netverslanir sem þú þekkir og treystir.  Þekkirðu verslunina ekki skaltu ganga úr skugga um að hún sé traustsins verð áður en þú átt viðskipti við hana. 

Notaðu fyrirfram greitt kreditkort

Verslir þú á netinu að staðaldri ættirðu að nota sérstakt kort til þess, fyrirfram greitt kreditkort, MasterCard Plús, og leggja aðeins inn á það jafnóðum og þú notar það.  Komist einhver yfir kortnúmerið er hvorki á því innistæða né heimild og því ekki hægt að nota kortið. 

Skráðu þig til að fá SMS

MasterCard býður korthöfum að skrá sig í SMS þjónustu, en þá getur þú fengið skilaboð með SMS í hvert skipti sem kortið er notað án þess að segulröndin sé lesin, þ.e. kortið er notað á netinu eða í símgreiðslu.  Kannist þú ekki við færsluna hefurðu strax samband og við getum gripið í taumana. 

Aldrei gefa upp PIN – númer á netinu

PIN-númer kreditkorta á aldrei að gefa upp á netinu  og aldrei nema annaðhvort segulrönd eða örgjörvi sé lesið á afgreiðslustað.

Er síða vefverslunarinnar dulkóðuð?

Gakktu úr skugga um að vefverslunin sé á öruggu svæði.  Þetta má sjá á því að vefslóðin hefst ekki á http:// heldur https:// auk þess sem vafrinn sýnir yfirleitt tákn (t.d. læstan smekklás) sem gefur til kynna öruggt svæði. 

Aldrei senda kortnúmer í tölvupósti

Tölvupóstur er ekki öruggur nema til sérstakra ráðstafana sé gripið og hann dulkóðaður.  Annars er alltaf sá möguleiki fyrir hendi að einhver geti lesið tölvupóstinn. 

Varastu að nota tölvur sem þú þekkir ekki/ treystir ekki fullkomlega

Það getur verið varasamt að gefa upp kortnúmer í tölvum annarra, ekki síst þar sem almenningur hefur aðgang að, t.d. á netkaffihúsum eða jafnvel í eigin tölvu á sk. heitum reitum (hot spot).  Þetta er m.a. vegna þess að í tölvum annarra hefurðu litla stjórn á því að eigandinn hafi fylgt eftirfarandi reglum:

  • Fylgstu með öryggisuppfærslum og uppfærðu reglulega
    Hugbúnaður og stýrikerfi tölva eru reglulega uppfærð af hálfu framleiðanda í viðleitni til að auka öryggi þeirra.  Sé um nýlegan hugbúnað að ræða er í flestum tilfellum hægt að láta hugbúnað og stýrikerfi fylgjast sjálf með mikilvægum uppfærslum.
  • Settu upp veiruvarnarforrit
    Gott veiruvarnarforrit er mjög mikilvægt þegar kemur að því að verja tölvur gegn þrjótum.
  • Settu upp forrit sem verja tölvuna fyrir hnýsibúnaði (e. Anti Spyware program)
    Hnýsibúnaður (e. spyware) er hugbúnaður sem komið er fyrir án vitundar notanda og safnar upplýsingum um það sem framkvæmt er eða vistað á tölvunni og kemur þeim upplýsingum áfram til þess sem bjó hugbúnaðinn til.  Mikilvægt er að hafa til staðar gott forrit sem ver tölvuna gegn þvílíkri óværu.
  • Settu upp eldvegg
    Góður eldveggur (e. firewall) ver tölvur fyrir árásum frá öðrum tölvum og ýmsum forritum sem gætu verið að reyna að senda upplýsingar af tölvunni til þrjóta.
  • Ekki láta tölvuna geyma mikilvæg lykilorð
    Vafrar bjóða gjarnan upp á að geyma lykilorð svo ekki þurfi að slá þau inn í hvert skipti sem síðan er heimsótt. Þetta getur verið mjög varasamt þegar um er að ræða heimabanka og annað sem veitir aðgang að upplýsingum um fjármál.


    Við vekjum athygli á því að hugbúnaður af þessu tagi er misgóður.  Leitaðu ráða hjá starfsfólki tölvuverslana um hvaða hugbúnaður hentar þér. 

Varastu „vefveiðar“ í tölvupósti (e. phishing/ spoof)

„Vefveiðar“ganga þannig fyrir sig að þú færð tölvupóst sem virðist vera frá fyrirtæki sem þú ert í viðskiptum við og ert beðin/n um að breyta skráningu þinni af einhverjum ástæðum, gjarnan af tækni- eða öryggisástæðum.  Smellirðu á hlekkinn í póstinum ferðu á síðu sem líkist upprunalegu síðunni en er í raun á vegum tölvuþrjóta sem eru á höttunum eftir notandanafni og lykilorði þínu.  Einfaldasta leiðin til að varast svona er að fara beint inn á vefsíðuna, en smella aldrei á hlekki í slíkum pósti.

Farðu gætilega með kreditkortið sjálft og gögn þar sem kortnúmer og gildistími koma fram

Það er til lítils að gera öll tölvusamskipti örugg ef einhver kemst yfir þessar upplýsingar eftir öðrum leiðum. 

Fylgstu með færslum á yfirliti

Það er fátt sem getur komið í stað þess að fylgjast hreinlega með færslum á kortið upp á gamla mátann eða í heimabankanum frá degi til dags. 

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasiðugerð