Reglur um umboð

Reglur um umboð

Ákveðnir hlutir (t.d. kortnúmer, gildistími korts og PIN númer) eru hvorki afhentir né gefnir upp öðrum en korthafa nema gegn framvísun umboðs.

Hér má sjá þær kröfur sem við gerum til umboða.

Umboð er ekki tekið gilt nema eftirfarandi komi fram:

Nafn og kennitala korthafa

Umboðið skal undirritað af korthafa með nafni og kennitölu.

Nafn og kennitala þess sem umboðið er veitt

Umboðshafi skal framvísa skilríkjum þegar hann framvísar umboðinu. Við tökum ljósrit af skilríkjum og geymum með öðrum gögnum um viðskiptin.

Heimild sem korthafi veitir umboðshafa

Á umboði skal koma fram hvaða heimild umboðið veitir viðkomandi, t.d. heimild til að sækja PIN númer.

Dagsetning og gildistími

Dagsetning skal koma fram á umboðinu og gildistími þess.

Þegar þjónusta hefur verið veitt samkvæmt umboði heldur MasterCard því eftir til að hafa eitthvað í höndunum ef upp kemur ágreiningur síðar.

Umboð send með tölvupósti eru ekki tekin gild en heimilt er að senda þau á faxi.

 

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Vefkerfi