Kortatryggingar
Með því að greiða tilskilinn hluta af ferðakostnaði með viðkomandi Kreditkorti fyrir brottför nýtur korthafi öruggra ferðatrygginga og neyðarþjónustu um allan heim. Ferðatryggingar korta eru breytilegar eftir tegund korts og því er mikilvægt fyrir korthafa að kynna sér vel tryggingaskilmála síns korts:
Tryggingar á kreditkortum Kreditkort hf eru hjá Sjóvá og sér Sjóvá um að meta tjón korthafa og reiða út bætur samkvæmt kortaskilmálum. Hægt er að sjá nánar um skilmála korta hér:
Neyðarþjónusta Kreditkorts hf
Þegar snurða hleypur á þráðinn á ferðalögum erlendis er SOS kortið, auk ferðaslysatrygginga Kreditkorta hf einn allra veigamesti þátturinn í víðtækri þjónustu fyrirtækisins við korthafa sína.
SOS kortið
SOS kortið er gefið út af SOS International sem er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í neyðarhjálp við ferðamenn og veitir fyrirtækið neyðarþjónustu allar sólarhringinn, alla daga ársins. Hvar sem er og hvenær sem er veitir SOS kortið korthafanum aðgang að margvíslegri neyðarþjónustu, læknishjálp og peninga aðstoð, jafnvel þótt allir pappírar (peningar, skilríki og kort) hafi glatast.
Neyðarkort SOS
Kreditkort gefur út neyðarkort SOS þar sem er að finna öll þau símanúmer sem nauðsynlegt er að hafa við höndina komi eitthvað uppá. Tvö slík kort fylgja með öllum MasterCard kortum og er mælt með því að hafa eitt í veskinu og annað t.d. í ferðatöskunni eða á hótelinu. Neyðarkortið veitir þér í megindráttum rétt til fernskonar aðstoðar án aukakostnaðar:
- SOS gefur góð ráð símleiðis ef vanda ber að höndum
- SOS hefur samband við sjúkrahús og leggur fram ábyrgð fyrir kostnaði ef þörf krefur
- SOS Aðstoðar við og greiðir sjúkraflutninga ef vátryggður slasast eða veikist alvarlega erlendis. Jafnframt er veitt aðstoð við flutning vandamanna í síkum tilfellum.
- SOS veitir tímabundið peningalán til greiðslu sjúkra- og lögfræðikostnaðar
Hverjir geta nýtt sér þjónust SOS?
Allir MasterCard korthafar hafa aðgang að neyðarþjo´nustnni fyrir sig og maka (sambýlismaka) óháð því hvort greitt er fyrir ferð þeirra með korti eða ekki. Börn þeirra, undir 22 ára og yngri, njóta einnig aðstoðar SOS, þegar þau eru á ferð með foreldrum sínum (hjónum eða sambýlisfólki), ef annað/báðir eru MasterCard korthafar, t.d. með aðal- og aukakort.
Gagnleg símanúmer
Neyðarsími Kreditkorts hf - (+354) 533-1400
Sjóvá - (+354) 440-2000
SOS International, Kaupmannahöfn - (+45) 7010-5055
Strategic Insurance Service Ltd. (bílaleigutryggingar) - (+44) 848-458-9677

