Neyðarþjónusta Kreditkorts
Neyðarþjónusta við korthafa á ferðalögum erlendis
Þegar snurða hleypur á þráðinn á ferðalögum erlendis er SOS kortið, auk ferðaslysatryggingar Kreditkorts einn allra veigamesti þátturinn í víðtækri þjónustu Kreditkorts við korthafa sína.
SOS International
SOS International er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í neyðarhjálp við ferðamenn, og veitir fyrirtækið neyðarþjónustu allan sólarhringinn, alla daga ársins. Hvar sem er og hvenær sem er veitir SOS kortið korthafanum aðgang að margvíslegri neyðarþjónustu; læknishjálp og peningaaðstoð, jafnvel þótt allir pappírar - peningar, kort og skilríki séu glötuð.
Neyðarkort SOS
Kreditkort gefur út neyðarkort SOS þar sem er að finna öll þau símanúmer sem nauðsynlegt er að hafa við höndina komi eitthvað upp á. Tvö slík kort fylgja með öllum MasterCard kortum og mælt með því að hafa eitt kort í veskinu og annað í t.d. ferðatöskunni eða á hótelinu.
Neyðarkortið veitir í megindráttum rétt til fernskonar aðstoðar án aukakostnaðar:
- SOS gefur góð ráð símleiðis ef vanda ber að höndum.
- SOS hefur samband við sjúkrahús og leggur fram ábyrgð fyrir
kostnaði ef þörf krefur. - SOS aðstoðar við og greiðir sjúkrafl utninga ef vátryggður slasast eða veikist alvarlega erlendis. Jafnframt er veitt aðstoð við flutning vandamanna í slíkum tilfellum.
- SOS veitir tímabundið peningalán til greiðslu sjúkra- og lögfræðikostnaðar.
Fyrir hverja?
Allir MasterCard korthafar hafa aðgang að neyðarþjónustunni fyrir sig og maka (sambýlismaka) óháð því hvort greitt er fyrir ferð þeirra með korti eða ekki. Börn þeirra, 22 ára og yngri, njóta einnig aðstoðar SOS, þegar þau eru á ferð með foreldrum sínum (hjónum eða sambýlisfólki), ef annað/báðir eru MasterCard korthafar, t.d. með aðal- og aukakort.
Gagnleg símanúmer
Neyðarsími Kreditkorts
(+354) 533 1400
Sjóvá - Almennar tryggingar hf.
(+354) 440 2000
www.sjova.is
SOS International, Kaupmannahöfn
(+45) 7010 5055
Strategic Insurance Service Ltd. (bílaleigutryggingar)
(+44) 845 458 9677

