Car rental
24 klst bílaleigutjónsaðstoð til korthafa.
Með sérvöldum kortum fylgir Car rental skilríki en það veitir korthöfum sérstaka bílaleigutryggingu af bílaleigubíl erlendis. Ef korthafi verður fyrir tjóni á bílaleigubíl sínum þá aðstoðar fyrirtækið Strategic Insurance Services ltd. korthafa. Neyðarvakt er allan sólahringinn fyrir korthafa.
Skilríkið er gefið út í samstarfi við Sjóvá tryggingarfélag og þarf að greiða bílaleigubílinn með því korti sem að Car rental skilríkið fylgir.
Car rental skírteinið - PDF skjal
Ef að tjón verður
Ef að tjón verður vegna bílaleigubíls þarf tafarlaust að hringja í Strategic Insurance Services ltd. og greina frá atburðinum og veita upplýsingar um korthafa og tjónið. Við bendum korthöfum á að nauðsynlegt er að hafa samráð við Strategic Insurance Services ltd. um ráðstafanir og framhald málsins en ef það er ekki gert gæti það skert bótarétt korthafans.
Upplýsingar um STRATEGIC INSURANCE SERVICES LTD
Strategic Insurance Services ltd.
Sími/Tel: +44 845 458 9677
Fax: +44 845 458 9633
netfang/email: strategic-claims (hjá) scml (.) co (.) uk

