Fyrirtækjakort Icelandair og MasterCard
Corporate kort
Corporate kort eru sérlega þægileg þeim starfsmönnum fyrirtækja sem ferðast mikið.
Kortið veitir mjög góðar ferðatryggingar s.s. slysa-, farangurs- og ferðarofstryggingar.
Corporate kortið veitir einnig handahafa þess aðgang að Saga Business Lounge í Leifsstöð, ef flogið er með Icelandair.
Ef óskað er, stendur Corporate korthöfum til boða ókeypis Priority Pass sem veitir aðgang að u.þ.b. 450 betri stofum erlendis.
Ef oft er verið að leigja bílaleigubíla hjá þínu fyrirtæki, getur Corporate kortið sparað stórfé! Innan tryggingaþátta þess er svokölluð bílaleigutrygging en hún kemur í stað kaskótryggingar sem oft er stór þáttur í leiguverðinu.
Frítt Einkakort fylgir Corporate kortinu ef óskað er. Kortið hefur enga fjárhagslega tengingu við fyrirtækið enda hefur korthafi Einkakortið til sinna eigin nota og ber fulla ábyrgð á því sjálfur.
Hagræðing og yfirsýn yfir ferðaútgjöld og risnu
- Veitir aðgang að færslusíðu MasterCard
- Stjórnendur og korthafar hafa gott yfirlit yfir eigin kort á færslusíðu
- Sundurliðaðar upplýsingar um ferðakostnað og frakt
- Starfsmenn vel tryggðir á ferðalögum
Fríðindi og þægindi fyrir starfsfólkið
- Aðgangur að Saga Business Lounge í Leifsstöð*
- Handhafi á kost á gullkorti, sk. Einkakorti, til einkanota án endurgjalds
- Vildarpunktar í Vildarklúbbi Icelandair , 9 pt. á hverjar 1.000 kr. af úttektum sem eru yfir 2.000 kr.
- Mjög góðar ferðatryggingar, þ.m.t. bílaleigutrygging
- Priority Pass sem veitir aðgang að yfir 450 betri stofum úti í heimi
* Ef flogið er með Icelandair. Ekki er nauðsynlegt að ferðast á Saga Business Class.
Hraðbankar
Mastercard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka sem kortin virka í erlendis. Úttektarheimildirnar eru:
Innlend: 50.000,- á viku á meðan heimild leyfir
Erlend: 80.000,- á dag á meðan heimild leyfir



