Allar fréttir

Fjármagnsgjald leggst á fyrirtækjakort frá 1. maí næstkomandi

16.4.2010

Í ljósi þessa hefur Kreditkort ákveðið að innheimta fjármagnsgjald sem er 1% fyrir hverja færslu og er gjaldið tilgreint í gjaldskrá Kreditkorts og er gjaldskrá hluti af viðskiptaskilmálum Kreditkorts hf. Innheimta fjármagnsgjalds tekur gildi 1. maí nk fyrir þá sem hafa verið með úttektartímabil frá 1. degi hvers mánaðar til síðasta dags sama mánaðar. Fyrir þá sem hafa verið með úttektartímabil frá 18. degi hvers mánaðar til 17. dags næsta mánaðar taka breytingarnar gildi 18. maí nk.

Breytingarnar taka því gildi á eftirfarandi dagsetningum:

  • 1. maí      Fjármagnsgjald 1%  leggst á fyrir þá sem eru með úttektartímabil 1. -31.
  • 18. maí    Fjármagnsgjald 1%  leggst á fyrir þá sem eru með úttektartímabil 18. -17.

 

Þetta gjald á ekki við um fyrirframgreidd greiðslukort útgefin af Kreditkorti. 

Að lokum vekur Kreditkort athygli korthafa á lið 12.8. í viðskiptaskilmálum American Express kortanna og lið 13.8. í viðskiptaskilmálum MasterCard kortanna, þar sem fram kemur að sé kort notað eftir að breyttir skilmálar hafa tekið gildi, teljist reikningshafi og korthafi samþykkir breytingunni. Ef reikningshafi eða korthafi fellst ekki á breytingar á skilmálum getur hann sagt upp samningi sínum við útgefanda.

 

Snjallar lausnir!

Hafðu samband við sölusvið Kreditkorts til að komast að því hvaða lausn hentar þínu fyrirtæki.

Sími: 550 1582
@: fyrirtaeki@kreditkort.is

Umsókn um fyrirtækjakort

Sækja um fyrirtækjakort

Færslusíða

Sækja um aðgang að færslusíðu

Skoða færslur á fyrirtækjakortum

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasíður