ALGER NÝJUNG Á ÍSLANDI
Frá og með 7. desember 2009 kynnum við nýja þjónustu sem leysir ferðaávísun Kreditkorts af hólmi. Þjónustan ber heitið Points.is og gerir korthöfum neðangreindra korta kleift að nota fríðindin á mun fjölbreyttari máta en áður. Points.is er vefsíða þar sem hægt er að innleysa þá punkta sem korthafi safnar og getur því nýtt punktana til að kaupa margskonar vörur og þjónustu. Punktastaða korthafa verður uppfærð mánaðarlega inn á Points.is í stað árlega líkt og vani var með ferðaávísunina.
Þeir korthafar sem eru með kort hjá okkur hafa nú þegar safnað punktum allt frá 18. febrúar 2009. Með nýja fríðindakerfinu okkar safnar korthafi punktum af allri veltu kortsins. Kreditkort er eini kortaútgefandinn á Íslandi sem veitir korthöfum fríðindi af allri veltu, hvort sem um er að ræða veltu innanlands, erlendis eða úttekt í hraðbanka.
Korthafar sem hafa safnað ferðaávísun fyrir 18. febrúar 2009 munu fá hana senda til sín eins og áður. Söfnunin á þeirri ferðaávísun nær því einungis til 17. febrúar 2009.
Hægt er safna points-punktum með eftirfarandi MasterCard fyrirtækjakortum:
- Viðskiptakort Gull og Gull Plús safna 0,6% af allri veltu
- Viðskiptakort Platinum safnar 0,65% af allri veltu
Um Points.is
Vefsíðan er í samstarfi við verslanir í ýmsum vörum og þjónustuflokkum og er kaupferlið mjög einfalt og þægilegt. Eftir kaup á vefsíðunni nálgast korthafinn vöruna í verslunina með útprentuðu „gjafabréfi“ með afsláttarkóda, skrifar kódann á blað eða fær sent SMS með kvittun í farsíma.
Eftir innskráningu á www.points.is birtast strax þeir points-punktar sem korthafinn á nú þegar og einnig kemur fram á síðunni hvaða vörur eru í boði fyrir þá punktainneign sem korthafinn á. Nánar á síðunni er hægt að skoða allar aðrar vörur sem í boði eru og hvert points-punkta verð þeirra er.
Einnig er hægt að framselja punkta til annarra MasterCard korthafa, útgefið af Kreditkorti á www.points.is.
Kynntu þér points-punktana þína nánar og byrjaðu að nota fríðindi þín strax í dag.
Sjá nánar á www.points.is


