Priority Pass
Veitir aðgang að næði
Aðgangskort Priority Pass veitir handhöfum aðgang að rúmlega 500 betri biðstofum fyrir valda viðskiptavini í yfir 275 borgum í 90 löndum víðs vegar um heiminn.
Priority Pass veitir aðgang að frið, næði og veitingum á ferðalögum, óháð flugfélagi eða farrými.
Hvort sem þú þarft að vinna eða vilt taka því rólega veita betri stofur flugvallanna þér það næði sem til þarf.
Hóflegt gjald, eða USD 30, verður fært á MasterCard kortið sem Priority Pass kortið tengist í kjölfar hverrar heimsóknar.
Hver handhafi Priority Pass getur tekið með sér einn gest, og greiðast einnig USD 30 fyrir gestinn.
Handhafar Platinum fyrirtækjakorts greiða ekki fyrir heimsóknir og geta boðið með sér einum gesti án endurgjalds.
Priority Pass fylgir eftirtöldum fyrirtækjakortum
- Corporate kort
- Platinum fyrirtækjakort
Nánar
Hægt er að nálgast upplýsingar um þjónustu Priority Pass á prioritypass.com.
Að sækja um
Til þess að sækja um Priority Pass þarf að senda okkur tölvupóst á solusvid@kreditkort.is. Þar þarf að koma fram nafn og kennitala umsækjanda sem er handhafi Corporate korts eða Platinum fyrirtækjakorts.
Frekari upplýsingar um Priority Pass færðu í síma 550 1556, netfang solusvid@kreditkort.is.


