Innkaupakort ríkisins
Innkaupakort ríkisins er eins og Innkaupakort MasterCard nema að tvennu leyti; það er einungis ætlað fyrirtækjum og stofnunum á vegum ríkisins og því fylgja ferðatryggingar fyrir alla korthafa innkaupakorts ríkisins.
Nær 200 stofnanir og fyrirtæki
Tæplega 200 stofnanir hafa nú þegar tekið Innkaupakort ríkisins í notkun og nota það m.a. til greiðslu á reglulegum útgjöldum með boðgreiðslum. Vegna góðra ferðatrygginga er Innkaupakortið einnig mikið notað til greiðslu á ferðaútgjöldum.
Stofnanir eru flestallar að nýta sér þá hagræðingu sem skapast af samhliða notkun færslusíðu MasterCard og rafrænan flutning færslna í bókhald.
Umsókn um Innkaupakort ríkisins
Sækja um Innkaupakort ríkisins
Frekari upplýsingar um Innkaupakort ríkisins
Fræðslurit Ríkiskaupa með frekari upplýsingum
Fyrirtæki með rammasamning
Á vef Ríkiskaupa er að finna lista yfir þau fyrirtæki sem eru með rammasamning.



