Viðskiptakort

Viðskiptakort Gull

Hentar vel ef starfsfólk þarf að ferðast á vegum fyrirtækis, en því fylgja mjög góðar ferðatryggingar og aukin fríðindi

  • Mánaðarlega veltutengd uppsöfnun hjá Points.is
  • Mjög góðar ferðatryggingar, þ.m.t. bílaleigutrygging
  • Aðgangur að færslusíðu MasterCard
  • Val um aðild að Einkaklúbbnum eða World for 2

Með því að setja allar fastar greiðslur og regluleg innkaup á kortið má safna inneign á veltutengda uppsöfunun hjá Points.is.

Viðskiptagullkortið er hentugur kostur fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ef fyrirtæki hefur starfsmenn sem þurfa að ferðast á vegum þess er hentugt að sækja um Viðskiptakort Gull, en því fylgja mjög góðar ferðatryggingar auk hærri úttektarheimilda en á Viðskiptakorti Silfur.

Points.is

Handhafar Viðskiptakorts Gull fá maánaðarlega uppsöfnun hjá Points.is. Upphæð uppsöfnunar er tengd veltu allri veltu kortsins, innanlands og erlendis, og fyrnast 50% af mánaðarlegri söfnun fjárhæð á tveimur árum en restin ári síðar. Uppsöfnunin er 0,6% af veltu innanlands og erlendis.

Punktauppsöfnun hjá Points.is má nota hjá öllum samstarfsaðilum Points.is. Points.is er í samstarfi við verslanir í ýmsum vörum og þjónustuflokkum og er kaupferlið mjög einfalt og þægilegt.

Lesa meira

Hraðbankar

Mastercard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka sem kortin virka í erlendis. Úttektarheimildirnar eru:

BulletInnlend: 50.000,- á viku á meðan heimild leyfir

BulletErlend: 80.000,- á dag á meðan heimild leyfir

BulletPlúskort: Sömu heimildir og hér að ofan

Ferðatryggingar

Mjög góðar ferðatryggingar fylgja Viðskiptakorti Gull, þ.m.t. bílaleigutrygging. Þær eru í gildi meðan kortið er í gildi og veita ekki einungis korthafanum sjálfum tryggingavernd heldur einnig maka hans og börnum til loka 22. ára aldurs.

Greiða verður einhvern hluta ferðakostnaðar með kortinu til að tryggingin sé í gildi. Þegar bíll er leigður erlendis þarf að framvísa tryggingaskírteini (e. Car rental certificate of insurance) áður en samningur er undirritaður.

Neyðarþjónusta

MasterCard neyðarþjónustan veitir korthöfum MasterCard öryggi á ferðalögum erlendis. Hún er starfrækt um allan heim, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þar er veitt margvísleg neyðarþjónusta, s.s. læknishjálp, peningaaðstoð og ráðgjöf.

Aðild að Einkaklúbbnum eða World for 2

Handhafar MasterCard Viðskiptakorta Gull geta valið um aðild að Einkaklúbbnum eða World for 2

Einkaklúbburinn

Einkaklúbburinn býður félögum sínum veglegan afslátt á fjölmörgum veitinga- og skemmtistöðum. Frekari upplýsingar um Einkaklúbbinn er að finna á vef hans, www.ek.is.

World for 2

World for 2 býður svokölluð „tveir fyrir einn“ tilboð. Tvöföld ánægja á einföldu verði með World for 2. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu World for 2, www.worldfor2.is.


Sækja um kort

 

Snjallar lausnir!

Hafðu samband við sölusvið Kreditkorts til að komast að því hvaða lausn hentar þínu fyrirtæki.

Sími: 550 1582
@: fyrirtaeki@kreditkort.is

Umsókn um fyrirtækjakort

Sækja um fyrirtækjakort

Færslusíða

Sækja um aðgang að færslusíðu

Skoða færslur á fyrirtækjakortum

Sækja um aðgang að færslusíðu

Útlit síðu:

Þessi vefur byggir á Eplica - Heimasiðugerð