Atlas Gull
|
Traust kort fyrir fólk á faraldsfæti.
Helstu kostir kortsins:
- Points punktasöfnun
- Mjög góðar ferðatryggingar
- Val um Einkaklúbbskort 2 frítt með
Points punktar
Points.is er fríðindakerfi sem býður upp á fjölbreytt og skemmtileg fríðindi og gerir þér kleift að nota fríðindin þín strax. Þú einfaldlega innleysir þá punkta sem þú átt og nýtir þá til að kaupa margs konar vörur og þjónustu. Punktastaðan þín er uppfærð mánaðarlega inn á Points.is.
Með uppsöfnun þinni á kortið safnar þú punktum af allri veltu kortsins. Kreditkort er eini kortaútgefandinn á Íslandi sem veitir korthöfum fríðindi af allri veltu, hvort sem um er að ræða veltu innanlands, erlendis eða úttekt í hraðbanka.
Gull og Gull Plús korthafar safna 0,6% af allri veltu.
Val um Einkaklúbbskort
Korthafar geta óskað eftir Einkaklúbbskorti án endurgjalds. Sendu okkur póst á kreditkort (hjá) kreditkort (.) is með ósk um að fá kortið og við sendum það til þín um hæl.
Einkaklúbburinn er öflugasti veitinga- og fríðindaklúbbur á Íslandi, veitir klúbbfélögum sínum 10–50% afslátt á fjölmörgum veitinga- og skemmtistöðum um land allt. Nánar á www.ek.is.
Plúskort í boði
Það er einnig í boði fyrir þig að fá Gullkortið sem plúskort. Plúskort er fyrirfram greitt kreditkort en þannig getur þú notað kortið eins og debetkort, greiðir engin færslugjöld, safnar fríðindum af allri veltu og hægt að nota við viðskipti á netinu.
Tryggingar um kortið
Með Gullkorti fylgja úrvals ferðatryggingar og neyðarþjónusta. Við mælum með að þú kynnir þér ferðatryggingarnar á kortinu þínu. Þú getur kynnt þér tryggingar hér.
Neyðarþjónustan er opin allan sólarhringinn og leggjum við okkur fram við að leysa mál þitt eins fljótt og þægilega og hægt er. Neyðarsímanúmerið okkar er 550 1500.
Hraðbankaheimildir kortsins
MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka til að taka út reiðufé, hér heima og erlendis. Úttektarheimildir kortsins eru:
- Innanlands: 50.000 kr. á viku á meðan heimild leyfir.
- Erlendis: 80.000 kr. á dag á meðan heimild leyfir.
- Plúskort: sömu heimildir og hér að ofan.
Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.
Árgjald kortsins
Árgjald kortsins er 9.500 kr.
Árgjald aukakortsins er 4.750 kr.

