Atlas Platinum

Platinum kortið tryggir þér sérstöðu á kortamarkaðnum. Þú færð persónulega og einstaklega lipra þjónustu. Kortið er vel þekkt um allan heim og er trygging þess að þú sért traustur og öruggur viðskiptavinur sem við metum mikils.

Helstu kostir kortsins:

  • Points punktasöfnun
  • Úrvals ferðatryggingar, þ.m.t. bílaleigutrygging.
  • Frír aðgangur að Priority Pass betri stofum

Points punktar

Points.is er fríðindakerfi sem býður upp á fjölbreytt og skemmtileg fríðindi og gerir þér kleift að nota fríðindin þín strax.

Með uppsöfnun þinni á kortið safnar þú punktum af allri veltu kortsins. Kreditkort er eini kortaútgefandinn á Íslandi sem veitir korthöfum fríðindi af allri veltu, hvort sem um er að ræða veltu innanlands, erlendis eða úttekt í hraðbanka.

Platinum korthafar safna 0,65% punktum af allri veltu.

Val um Einkaklúbbskort

Korthafar geta óskað eftir Einkaklúbbskorti án endurgjalds. Sendu okkur póst á kreditkort (hjá) kreditkort (.) is með ósk um að fá kortið og við sendum það til þín um hæl.

Einkaklúbburinn er öflugasti veitinga- og fríðindaklúbbur á Íslandi, veitir klúbbfélögum sínum 10–50% afslátt á fjölmörgum veitinga- og skemmtistöðum um land allt. Nánar á http://www.ek.is/.

Tryggingar á kortinu

Með Gullkorti fylgja úrvals ferðatryggingar og neyðarþjónusta. Við mælum með að þú kynnir þér ferðatryggingarnar á kortinu þínu. Þú getur kynnt þér tryggingar hér.

Neyðarþjónustan er opin allan sólarhringinn og leggjum við okkur fram við að leysa mál þitt eins fljótt og þægilega og hægt er. Neyðarsímanúmerið okkar er 550 1500.

Hraðbankaheimildir kortsins

MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka til að taka út reiðufé, hér heima og erlendis. Úttektarheimildir kortsins eru:

  • Innanlands: 100.000 kr. á dag á meðan heimild leyfir. Hámark 400.000 kr yfir mánuðinn.
  • Erlendis: 100.000 kr. á dag á meðan heimild leyfir.
  • Plúskort: sömu heimildir og hér að ofan.

Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.

Árgjald kortsins

Árgjald kortsins er 18.600 kr.

Árgjald aukakortsins er 9.300 kr.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica