GottKort Sjómanna
|
|
- Kortinu fylgja ýmsir afslættir og tilboð
- Grunnferðatryggingar
- Neyðarþjónusta erlendis
- SMS sérþjónusta
Í fyrsta sinn á Íslandi er gefið út greiðslukort sem er sérstaklega hannað er fyrir sjómenn og þeirra þarfir í tilboðum, afsláttum og viðburðum.
Hvað er GottkKort
Kortið er hægt að fá sem kreditkort eða plús/fyrirframgreitt kort en í báðum tilvikum er um að ræða kort sem gefur þér afslætti eða fríðindi sem ekki hafa sést áður í tengslum við eitt kort.
Í grunninn er kortið alþjóðlegt MasterCard greiðslukort gefið út af Kreditkorti hf. og sem slíkt gildir það um allan heim. Þeir sem nota kortið hjá samstarfsaðilum GottKort geta nýtt sér þá afslætti sem eru í boði hverju sinni og þannig sparað tugi eða hundruðir þúsunda á hverju ári. Hugmyndafræðin er einföld, notaðu kortið og borgaðu minna.
Samstarfsaðilar
GottKort er í samstarfi við fjölda fyrirtækja sem gefa afslætti um land allt. Afslættirnir eru veittir á staðnum.
Upplýsingar um samstarfsaðila GottKorts
Plúskort
Það er einnig í boði að fá GottKort sem plúskort. Plúskort er fyrirframgreitt kreditkort en þannig getur þú notað kortið eins og debetkort, þó með því að fá þá afslætti sem í boði eru og greiða engin færslugjöld.
SMS sérþjónusta
Þú getur fengið SMS ef kortið er notað án segulrandar (t.d. á netinu eða í síma) – ef þú ferð yfir 90% af heimild – þegar lagt er inn á fyrirframgreitt kort.
Óskaðu eftir að skrá kort þitt í þessa þjónustu með því að senda okkur tölvupóst á kreditkort (hjá) kreditkort (.) is með nafni þínu, kennitölu, kortategund og farsíma og við skráum þig í þjónustuna okkar.
Ferðatryggingar
Grunnferðatryggingar samanborið við tryggingar Silfurkorts og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis.
Sjá ferðatryggingar sem fylgja þessu korti.
Hraðbankaheimildir kortsins
MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka til að taka út reiðufé, hér heima og erlendis. Úttektarheimildir kortsins eru:
- Innanlands: 50.000 kr. á viku á meðan heimild leyfir.
- Erlendis: 80.000 kr. á dag á meðan heimild leyfir.
- Plúskort: sömu heimildir og hér að ofan.
Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.
Árgjald kortsins
Árgjald kortsins er 7.500 kr.
Ekki er hægt að sækja um aukakort á GottKort Sjómanna kortið.

