Almennt kort

Almenna kortið er ódýrt en þó öflugt kort sem hentar vel fyrir þá sem vilja kreditkort en hafa ekki áhuga á þeirri fríðindasöfnun sem oft fylgir kortunum.

Kortið kostar einungis 100 kr. á mánuði og á því eru engin færslugjöld!!
Kortið hentar vel þeim sem vilja:
– Versla á netinu
– Borga engin færslugjöld
– Eignast ódýrt greiðslukort

Aukið öryggi

Þú getur fengið SMS ef kortið er notað án segulrandar. Þetta t.d. á við þegar verslað er með kortinu á internetinu eða í gegnum síma. Þetta er frábær leið til þess að auka við öryggi kortsins og veitum við þessa þjónustu án endurgjalds.

Plúskort í boði

Það er einnig í boði að fá Almennt kort sem plúskort. Plúskort er fyrirfram greitt kreditkort en þannig getur þú notað kortið eins og debetkort og greiðir engin færslugjöld.

Engar ferðatryggingar

Til þess að bjóða Almennt kort á eins góðu verði og hægt er þá fylgja því engar ferðatryggingar. Þetta kort er því kjörið fyrir þá sem vilja sjá um sínar tryggingar sjálfir þegar þeir ferðast erlendis.

Hraðbankaheimildir kortsins

MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka til að taka út reiðufé, hér heima og erlendis. Úttektarheimildir kortsins eru:

  • Innanlands: 25.000 kr. á viku á meðan heimild leyfir.
  • Erlendis: 50.000 kr. á dag á meðan heimild leyfir.
  • Plúskort: sömu heimildir og hér að ofan.

Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.

Árgjald kortsins

Árgjald kortsins er 1.200 kr eða einungis 100 kr/per mánuð.

Árgjald aukakorts er 600 kr.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica