Corporate kort

Corporate kort eru sérlega þægileg þeim starfsmönnum fyrirtækja sem ferðast mikið.

Kortið veitir mjög góðar ferðatryggingar s.s. slysa-, farangurs- og ferðarofstryggingar.

Corporate kortið veitir einnig handhafa þess aðgang að Saga Business Lounge í Leifsstöð, ef flogið er með Icelandair.

Ef óskað er, stendur Corporate korthöfum til boða ókeypis Priority Pass sem veitir aðgang að u.þ.b. 600 betri stofum erlendis.

Ef oft er verið að leigja bílaleigubíla hjá þínu fyrirtæki, getur Corporate kortið sparað stórfé! Innan tryggingaþátta þess er svokölluð bílaleigutrygging en hún kemur í stað kaskótryggingar sem oft er stór þáttur í leiguverðinu.

Frítt Einkakort fylgir Corporate kortinu ef óskað er. Kortið hefur enga fjárhagslega tengingu við fyrirtækið enda hefur korthafi Einkakortið til sinna eigin nota og ber fulla ábyrgð á því sjálfur.

Aðgangur að færslusíðu er fyrir korthafa en á þeirri vefsíðu sjást allar færslur kortsins sem og hægt er að undirbúa þær fyrir bókhald fyrirtækisins.

Hagræðing og yfirsýn yfir ferðaútgjöld og risnu

  • Veitir aðgang að færslusíðu MasterCard
  • Stjórnendur og korthafar hafa gott yfirlit yfir eigin kort á færslusíðu
  • Sundurliðaðar upplýsingar um ferðakostnað og frakt
  • Starfsmenn vel tryggðir á ferðalögum

Fríðindi og þægindi fyrir starfsfólkið

  • Aðgangur að Saga Business Lounge í Leifsstöð*
  • Handhafi á kost á gullkorti, sk. Einkakorti, til einkanota án endurgjalds
  • Vildarpunktar í Vildarklúbbi Icelandair, 9 Vildarpunktar af hverjum 1.000 kr. sé færsla 2.000 kr. eða hærri af innlendri veltu hjá söluaðilum sem eru með sölusamning við Borgun
  • Mjög góðar ferðatryggingar, þ.m.t. bílaleigutrygging
  • Priority Pass sem veitir aðgang að yfir 600 betri stofum úti í heimi

* Ef flogið er með Icelandair. Ekki er nauðsynlegt að ferðast á Saga Business Class.

Hraðbankaheimild kortsins

MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka sem kortin virka í erlendis. Úttektarheimildirnar eru:

  • Innlend: 50.000 kr. á viku á meðan heimild leyfir.
  • Erlend: 80.000 kr. á dag á meðan heimild leyfir.
  • Plúskort: Sömu heimildir og hér að ofan.

Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.

Hraðbankaheimildir kortsins

MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka til að taka út reiðufé, hér heima og erlendis. Úttektarheimildir kortsins eru:

  • Innanlands: 50.000 kr á dag á meðan heimild leyfir.
  • Erlendis: 80.000 kr á sólahring

Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.

Árgjald kortsins

Árgjald kortsins er 12.400 kr.

Árgjald aukakorts er 12.400 kr.

Tengigjald við Vildarklúbb Icelandair er 2.500 kr.
- 4.000 Vildarpunktar verða lagðir inn á korthafa við greiðslu tengigjalds



Þetta vefsvæði byggir á Eplica