Viðskiptakort Gull

Hentar vel ef starfsfólk þarf að ferðast á vegum fyrirtækis, en því fylgja mjög góðar ferðatryggingar og öryggi fyrir ferðalagið.

  • Mjög góðar ferðatryggingar, þ.m.t. bílaleigutrygging
  • Aðgangur að færslusíðu MasterCard
  • Val um að fá sem Plúskort

Með því að setja allar fastar greiðslur og regluleg innkaup á kortið má safna inneign á veltutengda uppsöfnun hjá Points.is.

Einstaka yfirsýn er hægt að fá yfir kortið með færslusíðu MasterCard en þar er hægt er að skoða allar færslur jafnóðum og þær berast og það fæst yfirsýn yfir útgjöld fyrirtækisins. 

Plús

Viðskiptakort Gull má einnig fá fyrirframgreitt.

  • Engir reikningar
  • Engar ábyrgðir
  • Verslað á netinu án óþæginda

Mjög góðar ferðatryggingar

Ferðatryggingar og neyðarþjónusta á ferðalögum erlendis er eitthvað sem margir korthafar ganga að sem vísu.

Þetta er sennilega sá hluti fríðindanna sem fylgja MasterCard kortum sem fæstir hugsa mikið til, en getur að sama skapi verið gríðarlega mikilvægt ef eitthvað bjátar á á ferðalögum um fjarlægar slóðir.

Með Viðskipta Gullkorti fylgja mjög góðar ferðatryggingar, þ.m.t. bílaleigutrygging.

Sjá nánar um tryggingar kortsins.

Hraðbankaheimildir kortsins

MasterCard er þekkt vörumerki um heim allan og því oftast auðvelt að finna hraðbanka til að taka út reiðufé, hér heima og erlendis. Úttektarheimildir kortsins eru:

  • Innanlands: 50.000 kr á viku á meðan heimild leyfir.
  • Erlendis: 80.000 kr á dag á meðan heimild leyfir.
  • Plúskort: sömu heimildir og hér að ofan.

Athugið að hraðbankar gætu verið með aðra heimild og því verður úttekt að fara eftir heimild hraðbankans hverju sinni.

Árgjald kortsins

Árgjald kortsins er 11.200 kr.

Árgjald aukakorts er 11.200 kr.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica