Að greiða inn á kortið í gegnum netbanka/heimabanka
Þú getur greitt greiðsluseðil þinn með millifærslu frá netbanka/heimabanka,komið í afgreiðslu okkar í Ármúla 28 eða farið til gjaldkera í banka.
Við viljum benda á að allir reikningar birtast undir „Rafræn yfirlit“ í netbönkum/heimabönkum og því er hægt að nálgast reikninginn þangað um leið og hann er tilbúinn. Einnig má sjá allar færslur kortsins á Mínum síðum Kreditkorts.
Hér að neðan eru leiðbeiningar um hvernig þú getur greitt inn á eða greitt alveg upp kortið þitt í gegnum
netbanka/heimabanka:
– Veldu A/B-gíróseðil
– Sláðu 12 síðustu tölurnar í kortanúmerinu inn í reit sem er merktur tilvísunarnúmer
– Sláðu 7 fyrstu tölurnar í kennitölu þinni inn í reit merktan seðilnúmer
– Færslulykill (Fl) á alltaf að vera 31
– Hér að neðan er reikningur okkar hjá Íslandsbanka
– Banki-Hb-Stofnun, 0515-26-000035
– Kennitala Kreditkorts er, 660107-1180
– Sláðu inn upphæð og staðfestu borgunina
