Leiðbeingar um útfyllingu umsóknar um starf hjá Kreditkorti
Þó e.t.v. séu engin störf á lausu, er þér velkomið að senda okkur umsókn. Við tökum við öllum umsóknum og skráum í gagnagrunn, sem gengið er í áður en auglýst er eftir starfsfólki
Við bjóðum ekki upp á umsókn á vefnum af því við höfum meiri trú á eigin starfsferilsskrám einstaklinga; þær getur hver sniðið að eigin þörfum og ráðið áherslum. Aftur á móti er hér að finna nokkra punkta um hvað þarf að koma fram í starfsferilsskrá svo hún gagnist okkur sem best
Starfsferilsskrá
Til að umsókn eða starfsferilsskrá gagnist okkur sem best þurfa eftirfarandi atriði að koma fram:
Persónulegar upplýsingar
Nafn og helstu hagir; fjölskyldustaða, fjöldi barna og dagvistun ef við á. Hvernig hægt er að ná í umsækjanda
Menntun
Skólar og helstu námskeið sem umsækjandi hefur sótt. Skóli, námstími, og gráða eða áætluð námslok.
Starfsferill
Helstu störf; hvar unnið, við hvað, tímabil sem unnið var, ástæða uppsagnar.
Hæfni, þekking og reynsla
Tungumála- og tölvukunnátta, reynsla við skrifstofustörf eða stjórnun. Allt sem þú telur að geri þig hæfa/n til að gegna starfinu sem sótt er um.
Meðmælendur
Einn eða fleiri aðilar sem gefið geta upplýsingar um frammistöðu umsækjanda í starfi.
Starf sem sótt er um
Við hvað hefðir þú áhuga á að vinna? Sækistu eftir fullu eða hlutastarfi, sumarstarfi eða verkefnum
Ýmis atriði sem gott er að hafa með í umsókn
Einnig getur eftirfarandi auðveldað okkur meðferð umsókna
Ljósmynd: Passamynd.
Styrkleikar/veikleikar: Hverjir eru þínir helstu styrkleikar og veikleikar sem starfskrafts, og af hverju?
Skil umsókna
Hægt að senda okkur almennar umsóknir í tölvupósti starf@kreditkort.is
Meðferð umsókna
Þegar umsókn berst er hún skráð í gagnagrunn okkar, sem við svo leitum í þegar starfsfólk óskast. Öllum umsóknum er svarað skriflega þar sem greint er frá því að umsóknin hafi verið móttekin og skráð og hver meðferð hennar verði. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál .
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.