Upphafið - fyrstu 10 árin: 1980-1989
Ágrip úr sögu Kreditkorts hf. - fyrsti áratugurinn
Forsagan - 8. áratugurinn
Á síðari hluta 8. áratugsins voru miklar hömlur á sölu gjaldeyris á Íslandi og þurfti að sækja sérstaklega um ferðamannagjaldeyri til Seðlabanka gegn framvísun flugmiða áður en haldið var utan. Margir keyptu viðbót á svörtum markaði.
Á ferðalögum erlendis höfðu menn orðið þess varir að ákveðnir aðilar fengu betri þjónustu en aðrir, t.d. þegar leigja þurfti bíl eða við innritun á hótel. Þessir einstaklingar áttu það sameiginlegt að borga með litlu plastkorti í stað seðla.
Fyrstu kynni Íslendinga af fyrirbærinu kreditkorti voru í gegnum ferðaskrifstofuna Útsýn, sem var á þessum tíma með umboð fyrir American Express kreditkort, en til að fá það urðu menn að fá leyfi Seðlabankans, því gjaldeyrisstaða landsins var talin í húfi.
Seint á 8. áratug 20. aldar ákváðu nokkrir framtakssamir einstaklingar að innleiða hér á landi þessa merku nýjung sem breiðst hafði út um hinn vestræna heim og koma á fót íslensku kreditkortafyrirtæki.
Fyrst í stað þegar frumherjarnir voru að stíga þetta framfaraspor mæta þeir mikilli andstöðu hér heima en viðhorf fólks breytist smátt og smátt.
1980
- Fyrsta greiðslukortafyrirtækið á Íslandi, EUROCARD á Íslandi - Kreditkort hf., stofnað 13. janúar af Gunnari Bæringssyni, Haraldi Haraldssyni í Andra og fleiri fjárfestum. Í upphafi voru starfsmenn 3, í einu herbergi hjá Andra hf. í Ármúla 28, þar sem félagið er enn til húsa, þó bæði starfsmönnum og herbergjum hafi fjölgað.
- Kreditkort mæta mikilli og neikvæðri umræðu; þau eiga að auka verðbólgu, steypa neytendum í skuldir, þrengja að kaupmönnum og hækka hjá þeim vöruverð, auk þess sem einstaklingum sé ekki treystandi fyrir þessari starfsemi. Einn þingmaður gengur svo langt að líkja kreditkortum við eiturlyf í ræðu sinni á Alþingi.
- Fyrsta kreditkortið á Íslandi er gefið út 10. júlí 1980, og fyrstu úttektina gerir Haraldur í Andra hjá Tékk-Kristal síðar sama dag. Kortið er eingöngu til notkunar á Íslandi.
- Hægt að sækja um kort til notkunar erlendis, en þær umsóknir þarf að leggja fyrir gjaldeyriseftirlit Seðlabankans. Eru fengin kort frá EUROCARD í Danmörku fyrir þá örfáu viðskiptafrömuði og embættismenn hjá hinu opinbera sem fá kort. Eingöngu má nota kortin til greiðslu á ferðakostnaði og öðrum nauðsynjum í viðskiptaferðum.
1982
- Útvegsbanki Íslands og Verzlunarbanki Íslands hf. eignast hlut í Kreditkorti, sem verður sameignarfélag. Sparisjóður Vélstjóra tekur upp samstarf við félagið.
- Fyrstu alþjóðlegu kortin eru gefin út til aðila sem Seðlabanki samþykkti. Kort þessi má þó aðeins nota til að greiða ferðakostnað og hefur gjaldeyriseftirlit Seðlabankans eftirlit með því. Til dæmis má gera ráð fyrir athugasemd ef keyptir eru sokkar í Harrod's í London.
- Landsbankinn hefur umboð fyrir VISA og gefur út kort til örfárra valinna embættis- og kaupsýslumanna.
- Um 300 sölustaðir taka við kortum 1.000 EUROCARD korthafa. Úttektarheimildir voru á bilinu 2-8.000 nýkrónur, en þetta er strax eftir myntbreytingu.
1983
- Aukið frelsi í gjaldeyrisviðskiptum. Ekki þarf lengur að leggja umsóknir um alþjóðleg kort fyrir Seðlabanka.
- Allir bankar aðrir en Útvegsbanki og Verzlunarbanki, og sparisjóðir aðrir en Sparisjóður Vélstjóra stofna VISA Ísland. Bankarnir gefa VISA kortin út sjálfir en VISA Ísland annast bakvinnslukerfin og samskipti við kaupmenn.
1984
- Um 7 þúsund alþjóðleg kort og u.þ.b. 400 sölustaðir í upphafi árs.
- Ferðatryggingar teknar upp og neyðarþjónusta boðin allan sólarhringinn vegna ferðalaga korthafa erlendis.
- Í lok árs eru kreditkort á Íslandi orðin 90 þúsund og VISA Ísland hefur náð um 3/4 markaðarins í krafti öflugra dreifikerfis; en það samanstendur af öllum útibúum bankanna sem stofnuðu VISA, á meðan EUROCARD er aðeins gefið út á einum stað, af Kreditkorti sf. í Ármúla 28.
- Íslendingar halda fyrstu stóru kortajólin.
1986
- Fyrirtækið verður hlutafélag á ný.
- Fyrstu Raðgreiðslurnar boðnar, til 11 mánaða, til að auðvelda fólki að eignast verðmætari hluti á einfaldan hátt.
- Sparisjóður Vélstjóra kaupir hlut í Kreditkorti hf.
1987
- Útgáfa hafin á EUROCARD Gullkortum, fyrstu gullkortum á Íslandi.

