Ágrip úr sögu Kreditkorts hf. - Frá aldamótum til dagsins í dag
2000
EUROPAY Ísland - Kreditkort hf. fagnar 20 ára afmæli með pompi og prakt.
Þróun Innkaupakorts hefst með undirritun samnings við fjármálaráðherra. Innkaupakortin eru hrein og klár bylting fyrir fyrirtæki því þau einfalda innkaupaferla og bæta yfirsýn yfir útgjöld til mikilla muna.
Samningur gerður við Diners Club Nordic um færslusöfnun vegna notkunar Diners Club kreditkorta á Íslandi. Með samningnum er stefnt að því að bæta þjónustuna og auðvelda erlendum ferðamönnum sem nota Diners Club greiðslukort að eiga viðskipti hér á landi.
2001
EUROCARD Golfkort, fríðindakort kylfingsins, gefin út í samstarfi við Golfsamband Íslands.
Maestro Platinum, fyrsta platinum debetkort í heimi gefið út af SPRON. SPRON Platinum debetkort inniheldur fleiri þjónustuþætti og meira frumkvæði í þjónustu og samskiptum en áður hefur þekkst.
2002
ATLAS ávísun verður MasterCard ferðaávísun og tekin er upp veltutenging.
SMS sérþjónusta -korthöfum býðst að fá sendar tilkynningar með SMS um úttektir á netinu og þegar þeir nálgast heimildaþak. Í þessari nýjung á Íslandi og felast áður óþekkt þægindi fyrir korthafa sem t.d. hafa haft áhyggjur af misnotkun kreditkorts síns á netinu.
MasterCard Plús - fyrsta fyrirframgreidda kreditkortið á Íslandi. Fyrirframgreitt kreditkort sameinar kosti debet- og kreditkorts; kostir kreditkorts án kröfu um ábyrgðarmenn. Þau virka í flesta staði eins og önnur kreditkort, nema að í stað úttektarheimildar kemur fyrirframgreiðsla korthafans. Allir geta loksins fengið kort við sitt hæfi. Með MasterCard Plús er ekki hægt að eyða peningum sem ekki eru til, því fylgja engir reikningar og það þarf ekki ábyrgðarmenn. Þó fylgja kortinu vel þekkt fríðindi og ferðatryggingar, auk þess sem hægt er að nota þau í viðskiptum á netinu.
ISIC kort - Búnaðarbankinn hefur útgáfu ISIC Maestro debetkorta.
MasterCard fram úr Visa í Bandaríkjunum. Í fyrsta sinn í 40 ára sögu greiðslukorta eru fleiri MasterCard kort í umferð í Bandaríkjunum en Visa. Í septemberlok 2002 voru 264,2 milljónir MasterCard korta í umferð á móti 259 milljónum Visa-korta, samkvæmt könnun CardWeb.com, vefseturs greiðslukortaiðnaðarins.
2003
Breyttar áherslur; EUROPAY Ísland verður MasterCard - Kreditkort hf. EUROCARD merkið hverfur smám saman af kortum og áherslan verður á MasterCard, eitt þekktasta vörumerki veraldar.
Allir bankar og sparisjóðir gefa út kort með MasterCard ferðaávísun.
Gengi erlendra færsla reiknað jafnóðum, en með því er gengisáhætta MasterCard korthafa úr sögunni. Ný gengistafla með um 200 gjaldmiðlum birt daglega á vef Kreditkorts hf.
MasterCard gerist einn aðalstyrktaraðila KSÍ til ársins 2006. Helstu áhersluatriði samstarfsins verða átak gegn fordómum og samvinna í tengslum við miðasölu á landsleiki - korthafar njóta sérkjara við kaup á miðum í MasterCard forsölu.
MasterCard International nær því takmarki sínu að verða stærsti styrktaraðili heims við vinsælustu íþrótt veraldar, knattspyrnu. Þetta veitir íslenskum MasterCard korthöfum aðgang að stærstu viðburðum knattspyrnunnar, t.d. Meistaradeild Evrópu, HM og EM.
Fríðindaklúbbar MasterCard hefja göngu sína á vefnum. Þeir eru þrír fyrst um sinn, Ferða-, Fótbolta- og Tilboðsklúbbur. Getur hver sem skráir sig í fríðindaklúbbana fylgst með tilboðum og leikjum fyrir MasterCard korthafa. Korthafar taka þeim mjög vel.
MasterCard Europe kaupir 45 auglýsingar úr herferð sem gerð var fyrir MasterCard á Íslandi til notkunar fyrir MasterCard útgefendur í Evrópu.Auglýsingarnar verða notaðar um alla Evrópu og þykir þetta mikil viðurkenning fyrir íslenska hönnun.
2004
e-kort, ný tegund fríðindakorts gefin út á vegum SPRON og samstarfsaðila. e-kortið er alger nýjung á íslenskum neytendamarkaði. Sérstaða þess felst í því að korthafar fá endurgreiddan hluta af allri innlendri kortanotkun fyrir utan peningaúttektir. Það er sama hvað korthafi verslar eða hvaða þjónustu hann kaupir með e-kortinu, hann fær alltaf 0,5% endurgreiðslu af innlendri veltu.
MasterCard ferðaávísun gildir í allt millilandaflug, og er orðin víðtækasta ferðafríðindakerfi á Íslandi; ekkert annað kerfi býður sömu fjölbreyttu notkunarmöguleikana. Hægt er að nota ferðaávísun í allt flug hjá yfir 20 ferðaskrifstofum og flugfélögum um land allt, hvort sem um er að ræða pakkaferðir, áætlunar-, leigu- eða netflug, auk þess sem hægt er að greiða inn á ferð með Norrænu.
Samningur við American Express um færslusöfnun vegna notkunar American Express korta á Íslandi. Við þetta verða allar færslur með American Express kortum rafrænar og þjónusta við seljendur færist til Íslands.
Uppgjörssíða MasterCard fer í loftið á vef félagsins, en þar geta seljendur nálgast allar færslur vegna MasterCard, JCB og American Express korta jafnóðum á vefnum og greint veltu eftir tegundum korta. Hægt er að fletta upp uppgjöri ákveðinna daga og einstökum færslum allt að tvö ár aftur í tímann auk þess sem hægt er að fylgjast með uppsöfnun í komandi seljendauppgjör frá degi til dags.
MasterCard Staðgreiðslulán boðin sem valkostur við Raðgreiðslur. Í stað þess að seljandi láni fyrir viðskiptunum tekur Kreditkort hf. að sér að lána korthafa og greiðir seljanda strax daginn eftir. Viðskiptin verða við þetta mun einfaldari en áður og ganga hraðar fyrir sig, auk þess sem kostnaður er lægri og kaupendur geta notið staðgreiðsluafsláttar þar sem hann stendur til boða.
2005
Uppgjör fyrirtækjakorta í erlendri mynt. Fyrirtækjum sem nýta sér fyrirtækjalausnir MasterCard boðið upp á að velja í hvaða mynt það greiðir fyrir kortanotkun sína. Er þetta sérstaklega hugsað fyrir fyrirtæki sem hafa miklar tekjur í erlendum gjaldeyri og þyrftu annars að kaupa krónur til að greiða kortareikninginn sinn.
Félagið hefur útleigu á kortaskönnum (Posum) til seljenda á betri kjörum en áður hafa þekkst. Aðeins er ein tegund í boði, en hún mætir öllum kröfum um móttöku þeirra greiðslukorta sem veitt er viðtaka á Íslandi, þ.á.m. örgjörvakorta (EMV).
Endurgreiðsla erlends virðisaukaskatts. Félagið tekur að sér að aðstoða viðskiptavini við endurheimtu erlends virðisaukaskatts í samstarfi við Fexco í Bretlandi.
Greiðsluseðlar teknir upp í stað gíróseðla.
Fríðindaklúbbum MasterCard fjölgar í sex og við bætast Tónlistar-, Bíó- og Dekurklúbbur. Þessu fylgja töluvert aukin umsvif og skráningar taka kipp.
100.000 MasterCard korthafar á Íslandi. Haldið upp á þennan stóráfanga.
Hjá Kreditkorti hf. starfa rétt ríflega 100 starfsmenn í u.þ.b. 80 stöðugildum.
2006
Útgáfa MasterCard korta með örgjörva hefst. Þetta er liður í að vinna gegn kortasvikum og auka öryggi kortaviðskipta. Nær ógjörningur er að falsa kreditkort með örgjörva. Að auki býður tilkoma örgjörvans upp á marga aðra möguleika, t.d. vildarkerfi og rafræn skírteini á sjálfu kortinu.
Glitnir eignast meirihluta í Kreditkorti hf. með kaupum á nær öllum hlut KB banka í félaginu. Eftir kaupin á Glitnir 51% í Kreditkorti hf., en KB banki 0,05%.
Aukin söfnun korthafa inn á Ferðaávísun hjá Samherjum Ferðaávísunar. Nokkur vel valin fyrirtæki, sem kölluð eru Samherjar Ferðaávísunar, taka að veita handhöfum MasterCard korta með Ferðaávísun afslátt af öllum viðskiptum í formi inneignar á Ferðaávísun. Afslátturinn er mismunandi eftir fyrirtækjum, en nemur allt að 20% af viðskiptum.
2007
Ákveðið að aðgreina útgáfu korta félagsins frá annarri starfsemi með því að skipta rekstrinum í tvö félög.